Götudrósin
kveðja
mér er sama
Ég er hætt að blogga. Vinsamlegast ekki hafa mig lengur sem línk ef þið eruð með svoleiðis. Bless.</description>
réttarfarið enn eina ferðina
Það er ótrúlega aulalega komið fyrir konum á þessu landi. Það verður ekki hjá því komist að horfast í augu við það eftir fréttir gærdagsins. Ég er ein af þeim örfáu sem er búin að vera að benda á þetta heillengi, þetta hroðalega réttarkerfi og hvernig aldrei nokkur maður hefur hlotið dóm fyrir heimilisofbeldi. Vanaleg viðbrögð við þessu frá konum eru að þær trúa þessu ekki. Flest fólk vill alltaf segja, þegar maður bendir á galla, að það sé nú eitthvað jákvætt í stöðunni. Það fer í taugarnar á mér og mér finnst það heimskulegt. Ég vildi óska að það þyrfti ekki alltaf eitthvað hræðilegt til... (more)</description>
uppdeit úr auga stormsins
Ég er hálf miður mín eftir þetta hryllilega óveður í gær. Það var ekkert smá skelfilegt og þótt ég hafi verið í góðu skapi allan daginn þá var ég að spá mikið í hvað væri eitthvað neikvæð orka í loftinu og margt slæmt að koma fyrir hjá þeim sem mér þykir vænt um. Eftir skelfingar fyrirlestursins fór ég að efast alvarlega um hrifningu æðri máttarvalda á mér (sem ég hef fundið svo sterklega fyrir í gegnum seinustu mánuði) og fann út að um leið og ég varð meðvituð um hana var hún tekin í burt. En semsagt, ég var stjörf yfir fréttatímanum þarsem var sagt frá brunanum í fjárhúsinu. Næstum 800... (more)</description>
njáluferðin mikla og eitthvað
Ég er svo ótrúlega fegin, þótt ótrúlegt sé, að mig langar til að segja frá því. Ég var að halda fyrirlestur í morgun. Þetta var eitthvað sem hefur hvílt einsog bjarg á herðum mér frá því skólinn byrjaði í haust, eini fyrirlestur annarinnar, en það er samt alveg nægilega rosalegt. Hingaðtil hafa þeir verið 4, allir gengið illa og það versta var að þessi þurfti að vera 5x lengri en það sem ég hingað til þurft að koma fram með. Ég var heltekin af efninu og það var einsog andlegt vortex í kringum mig frá því ég valdi það, ég vissi ótrúlega mikið og þetta hefði getað orðið mjög upplífgandi,... (more)</description>
með rússana í rassinum
Maður er alveg að farast hérna úr óttablöndnum spenningi. Enn og aftur er þetta allt mér að kenna. Ég þurfti að hrífast svo mikið af rússanum sem tók þátt í eurovision 2001 að ég fór að láta mig dreyma um heilan hóp af rússum sem myndi koma hingað og labba, sætir og öðruvísi um göturnar en guð minn almáttugur, þurftu guðirnir að uppfylla óskir mínar svona? Að vera hertekin af rússum er ekki það besta sem hent getur í aðdraganda skammdegissins. En ég meina kannski eru þeir bara að gera tundurdubbla æfingar eða kjarnorkupælingar og ætla bara að vera með náttúrufræðilegt ógnarvesen en ekki... (more)</description>
Af ýmsu rugli....
      <description>Ég get ekki annað sagt en ég sé slegin yfir úrslitunum í síðasta Am Ne Top Mo þætti. Ég skil bara engan vegin hvernig þetta gat gerst? Þarna var unga fagra saklausa snótin Catie, örlítið drengsleg á myndinni sinni og átakanlega lofthrædd í myndatökunni (en langsvölust) og svo hin einum of bilaða Camille, það var fyndið fyrst en manneskjan er yfirborðsleg frekja sem á enga framtíð fyrir sér í heiminum einsog hún hagar sér. Hvor átti að fara heim? Allavega ekki sígrátandi litla Catie. Hún leit út einsog svona fjarlægur, viðkvæmur engill og snillingur á labbibrautinni þeirra, engin hinna virðist... (more)</description>
uppspretta breytinga
Jei. Sorgarþrungnu lífi mínu án Dv er loksins lokið!!! Þökk sé Kordeliu hinni vænu sem uppá sitt einsdæmi og í samráði við meðleigjanda sinn, fór að halda til haga eintökum þeim er þær komust yfir af þessu blaði og létu svo mig, fatlaða af aulafréttaskorti, hafa þennan allrisastóran bunka.
Þetta er í stórum poka og alltaf þegar mig langar í almennilega krassandi fyrirsögn teygi ég netta höndina ofaní pokkann og dreg upp eintak. Lágkúran bregst mér ekki!
Reyndar verð ég bara að koma því á framfæri að óheiðarleiki, íhaldssemi og undirlægjuháttur við ósanngjarna valdhafa einsog morgunblaðið... (more)</description>
kominn tími til
Ég er ekkert smá ánægð með daginn í dag, enn sem komið er og vona að hann haldi áfram á þessa leið. Ég var glaðvakandi um ellefu og ekki með neinar afleiðingar drykkju frá kvöldinu áður, enda drakk ég ekkert, og þ.a.l engin þynnkuviðbjóður til að halda aftur af manni. Ég ákvað að fara og leita uppi bókamarkaðinn sem mig langaði svo á seinustu helgi en komst ekki til sökum þess hve allir voru þá þunnir og myglukenndir. Vikan var líka misheppnuð þannig að ég fór ekki neitt. En allavega þá lagði ég í þetta núna og var óhemju bjartsýn og full tilhlökkunar. Í strætónum á leið til Skeifunnar... (more)</description>
átakanlegt ammæli
Það er örugglega komið ár síðan ég byrjaði að blogga. Það er kannski aðeins minna þannig að við circum það bara niður svo ég geti farið að fagna núna. Ég ætla að leggja mitt að mörkum fyrir síðuna svo tímamótin sjáist eitthvað á henni Tölvan mín er svo léleg að ég get varla litið á póstinn minn hvað þá margflett einhverju upp á síðum einsog blogdrive, en þetta er eitthvað sem gerist bara einu sinni á ári svo ég get alveg boðið eigin pirringi birginn fyrir það.
Ég er líka rosa mikið að bera saman það sem er gott í lífinu núna (lífi annarra þ.e.a.s) og það sem er slæmt. Og það sem hefur... (more)</description>